Sjóðurinn var stofnaður árið 1987. Tilgangur hans er m.a. að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi eða nýstárlegt framtak sem unnið er á klúbbsvæðinu, á sviði mennta, lista,vísinda eða atvinnumála.![](/images/Mynd_0229546.jpg)
Verðlaunin hlutu að þessu sinni þær Ragnheiður Gröndal söngkona, og Margrét Pála Ólafsdóttir stofnandi og framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, 250 þúsund krónur hvor.
Margrét Pála Ólafsdóttir er fædd 1957 og uppalin á Hólsfjöllum í Þingeyjarsýslu. Á þeim tæpu þrjátíu árum frá því hún steig fyrst inn á leikskóla hefur hún haft margvísleg áhrif á íslenska leikskólakerfið og er nú einnig tekin til við þróunarstarf á grunnskólastigi með stofnun Barnaskóla Hjallastefnunnar.
Margrét Pála er höfundur Hjallastefnunnar sem nýrrar leiðar í skólastarfi og er stofnandi og framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar ehf. sem er stærsta skólarekstrarfyrirtæki á Íslandi. Hún lauk fóstruprófi 1981, framhaldsnámi í stjórnun 1996 og árið 2000 lauk hún meistaragráðu í uppeldis og menntunarfræði frá Kennaraháskóla Íslands. Margrét Pála er kunnur fyrirlesari hérlendis og erlendis og hefur ritað fjölda greina og bóka um Hjallastefnuna og jafnréttis- og skólamál. Margrét Pála hlaut árið 1997 Jafnréttisverðlaun Jafnréttisráðs og ráðherra jafnréttismála fyrir Hjallastefnunna og árið 2006 hlaut hún riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir frumkvæði í menntamálum.
Ragnheiður Gröndal er fædd í Garðabæ árið 1984. Hún lauk Burtfararprófi frá Tónlistarskóla FÍH með áherslu á jazzsöng vorið 2005 og 7. stigi í klassískum píanóleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 2006. Samhliða námi hefur Ragnheiður verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi og gefið út 4 plötur í eigin nafni. ![](/images/Mynd_0229549.jpg)
Ragnheiður hlaut Íslensku Tónlistarverðlaunin árið 2004 sem söngkona ársins og plata hennar "Vetrarljóð" var valin plata ársins í dægurtónlistarflokki. Nýjasta plata Ragnheiðar "Þjóðlög" hefur hlotið frábærar viðtökur gagnrýnenda og almennings en þá plötu vann Ragnheiður í samstarfi við Hauk Gröndal bróður sinn sem útsetti og stjórnaði upptökum. Um þessar mundir stundar Ragnheiður nám í New York og sækir einkatíma í söng. New York dvölina hyggst Ragnheiður auk þess nota til að vinna að nýju efni og stefnir á að gefa út plötu með eingöngu frumsamdri tónlist árið 2008.
Stjórn Verðlaunasjóðs Rótarýklúbbsins Görðum skipa þeir Axel Gíslason formaður, Ingimundur Sigurpálsson og Jónas Hallgrímsson.
![](/images/Mynd_0229547.jpg)
|