7. júlí 2008

23. júní - Bjarni Már Gylfason - Frosthörkur á fasteignamarkaði og kólnun hagkerfisins

 

Ágætu Rótarýfélagar
 
Minni á Rótarýfund á í dag mánudaginn 23júní
 
Fundurinn er haldinn í Skátaheimilinu Jötunheimum, Bæjarbraut 7, Garðabæ
og hefst hann á hefðbundnum tíma kl. 12:15
 
 
Fundarefni dagsins er í höndum Starfsþjónustunefndar,
en formaður hennar er Halldóra Gyða Matthíasdóttir og varaformaður er Haukur Alfreðsson
 
Fyrirlesari á fundinum er Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins
Umfjöllunarefnið Bjarna er:  Frosthörkur á fasteignamarkaði og kólnun hagkerfisins.
 
Á fáeinum mánuðum hafa aðstæður í efnahagslífi okkar gjörbreyst. Gengi krónunnar hefur fallið, verðbólga aukist og vísbendingar um að atvinnuleysi sé að aukast. Frosthörkur einkenna fasteignamarkaðinn, velta hefur minnkað mikið og verð er tekið að lækka. Í erindi sínu mun Bjarni lýsa ástandi mála, aðdraganda þess og velta í framhaldinu upp hvernig hægt sé að bregðast við.
 
Jónas Hallgrímsson err með 3 mín. erindið
 
Inntaka verður á nýjum félaga
 
Vonandi einhverjar góðar fréttir af félögum og þeirra nánustu !
 
Félagar eru hvattir til að mæta
 
Með Rótarýkveðju
 
Guðmundur Guðmundsson
gsm 696-4949

 


Til baka


yfirlit funda