Mánudaginn 28. febrúar fór hópur félaga úr Rótarýklúbbnum Görðum að útsýnisskífunni sem klúbburinn hefur sett upp á Garðaholti.
Tilgangur fararinnar var að leggja lokahönd á frágang skífunnar og ganga úr skugga um að allt væri með þeim hætti sem að var stefnt.
Það er vel viðeigandi að lokafrágangur skífunnar beri upp á sama dag og hátíðarfundur vegna 100 ára afmælis Rótarý og afhjúpunar nýs fána klúbbsins.
Ofangreint er liður í undirbúningi umdæmisþings sem haldið verður af klúbbnum í Garðabæ í sumar.
Sjá fleiri myndir í myndaalbúmi undir 100 ára afmæli.
|