15. febrúar 2008 |
PAUL HARRIS félagar febrúar 2008 |
Tveir félagar úr klúbbnum fengu Paul Harris viðurkenningu á síðasta fundi klúbbsins. Það eru þeir:
Ingimundur Sigurpálsson og Óli Björn Hannesson
|
Ingimundur Sigurpálsson og Óli Björn Hannesson | |
meira... |
|
7. janúar 2008 |
HÁTÍÐARFUNDUR - Fundur 2000 |
Í tilefni af 2000 fundi Rótarýklúbbsins Görðum ætlum við að gera okkur dagamun og halda hátíðarfund á Garðaholti með mökum.
Fundurinn er mánudaginn 14 janúar og hefst kl. 19:00
Dagskrá:
3 mín erindi : Séra Bragi Friðriksson flytur stutt ágrip af Paul Harris
Paul Harris viðurkenningar veittar
Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Garðabæjar
Kvöldverður
Annáll klúbbsins, Ólafur G. Einarsson
Gjald vegna maka er kr. 2.300. Selt verður léttvín á staðnum á sanngjörnu verði.
Á fundinn mæta Umdæmisstjóri og forseti Rótarýklúbbs Hafnafjarðar með mökum
|
meira... |
|
20. desember 2007 |
Mánaðarbréf umdæmisstjóra nr. 5, . desember, 2007 |
Þegar þessar línur eru settar saman eru jólin mjög farin að nálgast. Þar með er hálft starfsár mitt nánast liðið og ég get fullvissað ykkur um að þessi tími hefur liðið hratt. Það er ærið verkefni að sinna umdæmisstjórastarfinu meðfram fullri vinnu en það er hins vegar afar skemmtilegt og gefandi og ekki ástæða til þess að sjá eftir þeim tíma sem fer í að sinna málefnum Rótarý.
Í þessu mánaðarbréfi ætla ég að nefna eitthvað af því sem borið hefur hæst á starfsárinu fram að þessu og önnur málefni sem koma upp í hugann. |
meira... |
|
21. október 2007 |
Áherslur Rótarýklúbbsins Görðum fyrir starfsárið 2007 – 2008 |
1) Viðhalda öflugu starfi klúbbsins á starfsárinu - Virkja nefndir og úthluta þeim verkefnum - Tryggja áhugavert fundarefni - Halda utan um umgjörð fundanna - Veita Paul Harris viðurkenningar - Vinna að rótarýfræðslu, sérstaklega til nýliða - Halda þrjú klúbbþing (einu lokið nú þegar) - Viðhalda, halda virkri og efla heimasíðu klúbbsins - Fara í tvær til fjórar fyrirtækjaheimsóknir
2) Umdæmið og Rótarý International - Halda uppi virkum samskiptum við umdæmið og aðra klúbba - Standa við skuldbindingar okkar gagnvart umdæminu - Standa við skuldbindingar gagnvart RI, m.a. 100 USD framlag á mann.
3) Mætingar - Taka á mætingum, hvetja þá sem eru undir í mætingum
4) Nýliðun - Taka inn fjóra nýja félaga á starfsárinu, tvo á hvoru misseri
5) Sérstök verkefni - Hvíla klúbbinn á skiptinema umsjón þetta starfsárið - Einbeita okkur að alþjóðaverkefni annað hvort í samstarfi við Alþjóðanefnd umdæmisins eða í samstarfi við annan/aðra klúbba - Halda ræðunámskeið í Garðaskóla fyrir 9. bekk þriðja árið í röð - Gjöf á hátíðarfána til Stjörnunnar (lokið)
Undirbúa 2000 fund klúbbsins sem hátíðarfund |
|
15. október 2007 |
Skemmtiferð á Þingvelli laugardaginn 20. október |
Þá er komið að því að gera eitthvað skemmtilegt saman. Skemmtinefnd hefur skipulagt ferð á Þingvelli laugardaginn 20. október næstkomandi kl:13:30. Farið verður í rútu frá Skátaheimilinu og ekið að Hakinu, þar sem þjóðgarðsvörður mun taka á móti okkur og sýna okkur fræðslusetrið. Þá tekur við rúmlega klukkustundar göngutúr, en Ragnar Arnalds, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður ætlar að ganga með okkur og fræða okkur um atburði fyrri alda á Þingvöllum. Eftir hressandi göngu og andlega næringu verður ferðinni heitið í bústað félaga okkar, Þóru Karlsdóttur, í Stíflisdal. Þar munum við þiggja hressingu og Eiríkur hyggst taka nokkur vel valin lög á gítarinn. Menn mega taka með sér söngvatn.
Heimkoma verður fyir kvöldmatarleytið. Þetta verður semsagt hreyfing, fróðleikur og skemmtun.
Þeir sem hafa ekki skráð sig geta sent á mig póst eða haft samband í síma 864-6981.
F.h. skemmtinefndar
Ingibjörg Hauksdóttir |
|
17. september 2007 |
Rotary afhendir Stjörnunni hátíðarfána |
5. júlí 2007 |
Nýr forseti - stjórnarskipti |
4. júlí 2007 |
Golfmót Rótarýklúbbanna |
20. apríl 2007 |
Nýr félagi tekinn inn 16. april |
22. mars 2007 |
Inntaka nýrra félaga 19. mars 2007 |
15. mars 2007 |
Inntaka nýrra félaga 12. mars 2007 |
16. janúar 2007 |
Verðlaunasjóður Rótarýklúbbsins Görðum veitir tvenn 250 þúsund króna verðlaun. |
12. janúar 2007 |
Verðlaunaafhending úr Verðlaunasjóði Rótarýklúbbsins Görðum |
10. desember 2006 |
Jólamessa og jólafundur tókust vel |
7. desember 2006 |
Jólafundur Rótarýklúbbsins Görðum 2006 |
eldri fréttir
|