Erling Ásgeirsson framkvæmdastjóri hjá Nýherja og félagi í Rótarýklúbbnum Görðum bauð klúbbfélögum í fyrirtækjaheimsókn til Nýherja 27. sept 2004.
Mótttökur voru allar hinar glæsilegustu og fyrirtækinu til sóma. Erlingur kynnti starfsemi Nýherja fyrir fundarmönnum á skeleggan hátt og mátti sjá og skynja að Nýherji er í góðum vexti og fullt af skemmtilegum hlutum að gerast.
|
Erling kynnir Nýherja |
Í heimsókninni var jafnframt ný heimasíða klúbbsins opnuð formlega af forseta klúbbsins Ingibjörgu Hauksdóttur og fór það vel í hátæknifyrirtæki.
Klúbburinn kann Nýherjamönnum bestu þakkir.
Myndir frá heimsókninni eru í myndasafni heimasíðunnar. |