Klúbbþing

Miðvikudaginn 12. september 

6. febrúar 2006

Unglinganámskeið Rótarý í Ræðulist (URR)

 

-Frábært tækifæri fyrir unga fólkið

 

Rótarýklúbburinn Görðum tekur nú í vetur þátt í verkefni sem Rótarýklúbburinn Reykjavík-Miðborg hóf fyrir nokkru sem hefur fengið nafnið URR -  Unglinganámskeið Rótarý í Ræðulist.  Þetta verkefni felst í því að kenna börnum í  9. - 10.bekk grunnskóla að standa upp og halda ræðu fyrir framan hóp af fólki.  Það er eitthvað sem allir þurfa að gera einhvern tíma á lífsleiðinni og eins og þjóðfélagið er orðið í dag þá þurfa þeir einstaklingar sem ætla sér að komast áfram í lífinu að kunna að halda ræðu. 

 

Þeir félagar okkar sem hafa boðið sig fram í að vera leiðbeinendur eru: Agnar Kofoed-Hansen, Bjarni Jónasson, Guðbjörg Alfreðsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Halldóra Gyða Matthíasdóttir og Jón B. Stefánsson.  Þetta er gott framtak hjá félögum okkar. Þetta er líka frábært tækifæri fyrir unga fólkið sem býr sig undir að fara í framhaldsskóla og frekara nám.

 

Samstarf er á milli Garðaskóla og klúbbsins um að fá að koma inn í lífsleiknitíma í 9. bekk og kynna fyrir nemendum ræðulist.  Um er að ræða þrjá tíma hjá hverjum bekk.  Fyrsti tíminn fer í að kynna Rótarý og grundvallaratirði í Ræðulist og síðan eru hinir tveir tímarninr notaðir til æfinga fyrir unglingana og fær hver nemandi 3 mínútur til að halda sína ræðu um áhugamál sitt eða eitthvað sem hann hefur áhuga að tala um. 

 

Undirrituð hefur fylgst með einum hópnum sem Halldóra leiddi og þessir ungu nemendur koma skemmtilega á óvart með hvað þau eru hugmyndarík og segja vel frá áhugamálum sínum og öðru áhugaverðu.

 

Vilji er hjá skólastjórnendum Garðaskóla að halda þessu samstarfi áfram og hefur lífsleiknikennarinn Guðmundur Einarsson skorað á okkar góða Rótarýklúbb að halda þessu áfram næsta vetur.

 

Mér hefur fundist áhugavert að fylgjast með þessu góða verkefni og tel að það sé verið að vinna gott uppbyggjandi starf fyrir framtíðarfólkið okkar.  Ég tók nokkrar myndir sem hægt er að skoða í myndaalbúmi hér á síðunni.

 

Klara Lísa Hervaldsdóttir

ritari Rótarýklúbbsins Görðum.


Til baka


yfirlit frétta

SMÞMFFL
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293012345
6789101112
<September 2019>
Fundarefni
Hlekkir

 Rótaryumdæmið á Íslandi

 

URR - Unglinganámskeið Rótarý í ræðulist

 

 

  Vesturför 2005